Þetta lag er enn eitt dæmið um hvernig hægt er að dýpka skilning
barnanna á lagi með því að segja þeim frá sögunni á bak við það og sýna
þeim hana með leikmunum og/eða leikþætti. Ég sýni söguna með
leikfangaköllum og -húsi. Karlarnir tveir eru vinir, og þegar hús þess
fyrra hrynur býður sá síðari honum að búa hjá sér. - Hreyfingarnar við
lagið eru örugglega þekktar víða. Það er líka hægt að einfalda þær og
fækka þeim fyrir yngstu börnin.
Á sandi byggði
Á sandi byggði heimskur maður hús, (x3)
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, (x3)
og húsið á sandinum féll.
Á bjargi byggði hygginn maður hús, (x3)
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, (x3)
og húsið á bjarginu stóð fast.
Hreyfingar
Sandi: hafa lófa flata, láta þá vísa niður og hreyfa fram og til
baka yfir hvor annan.
Byggði: hnefar krepptir og slegið ofan á hvor annan.
Heimskur: mynda hringi með vísifingri sitt hvorum megin við eyrun.
Hús: mynda hús með því að láta fingurgóma snertast.
Steypiregn: hreyfa fingur og láta hendur fara niður í leiðinni.
Vatnið óx og óx: hendur eru niðri, lófar eiga að vísa upp. Hendurnar
eru hreyfðar upp smám saman í takt við lagið.
Húsið: mynda hús með því að láta fingurgóma snertast.
Sandi: hafa lófa flata, láta þá vísa niður og hreyfa fram og til
baka yfir hvorn annan.
Féll: láta báðar hendur falla niður.
Bjargi: lófar eru flatir og vísa niður. Þeir eru lagðir til skiptis
ofan á hvor annan.
Byggði: hnefar krepptir og slegið ofan á hvor annan.
Hygginn: bent með vísifingri í átt að höfði.