Við á yngstu deild í Stapaskóla höfum verið að vinna með lagið Dúkkan hennar Dóru.
Texti
Dúkkan hennar Dóru var með sótt sótt sótt,
hún hringdi og sagði lækni‘ að koma fljótt fljótt fljótt.
Læknirinn kom með sína tösku og sinn hatt,
hann bankaði á dyrnar, rattatattatatt.
Hann skoðaði dúkkuna og hristi sinn haus,
hún strax skal í rúmið og ekkert raus.
Hann skrifaði á miða hvaða lyf hún skyldi fá,
„ég kem aftur á morgun ef hún er enn veik þá”.
Lag: höf. ókunnur
Texti: María B. Johnson
Sagan
Einu sinni var stelpa sem hét Dóra. Hún átti fallega dúkku sem hét
Júlía. Júlía var uppáhalds leikfangið hennar Dóru og þær voru alltaf
saman.
Dag einn þegar Dóra kom heim úr leikskólanum sá hún að Júlía var orðin
lasin. Júlía var með háan hita og þurfti að fara strax í litla bláa
rúmið sitt að hvíla sig.
Dóra bað mömmu sína um að hringja í lækninn og biðja hann um að kíkja
á Júlíu. Læknirinn bankaði á hurðina og þegar Dóra opnaði, heilsaði hann
og tók ofan hattinn sinn. Hann var með stóra rauða læknatösku með sér.
Læknirinn skoðaði dúkkuna hennar Dóru og leist ekki vel á hversu lasin
hún var. Hann sagði að Júlía þyrfti að liggja í rúminu í nokkra daga eða
þangað til henni líður betur.
Læknirinn skrifaði upp á lyf fyrir Júlíu og sagði við Dóru að Júlía yrði
að vera dugleg að taka lyfið sitt svo henni liði betur.
Júlía var mjög duleg að taka meðalið sitt og eftir nokkra daga var hún
orðin nógu hress til að fara að leika við Dóru vinkonu sína aftur.
Orð og hugtök
sótt (í merkingunni veikindi)
raus (þ.e. bull eða þvaður)
lyf (meðal)
Sjónrænt/áþreifanlegt
Við bjuggum til stutta sögu í loðtöflustíl sem við höfum verið að lesa
fyrir krakkana og út frá henni bjuggum við til lítinn leikþátt þar sem börnin fengu að skiptast
á að vera Dóra og læknirinn. Við bjuggum til hurð úr stórum pappakassa sem krakkarnir geta
gengið í gegnum og svo fengu þau læknaslopp og dúkku. Mjög einfalt og skemmtilegt.
Við settum söguna líka upp myndrænt á renning sem hangir upp á vegg hjá okkur og þeim
finnst mjög skemmtilegt að skoða.
Samþætting
Við höfum leikið með læknadót í hlutverkaleik, sungið lög eins og „ég er lítið
lasið skrímsli“ og lesið til dæmis bækurnar Emma meiðir sig og Emma fer til læknis. Við
töluðum sömuleiðis um tannlækna í tannverndunarvikunni og lásum bækurnar um Karíus og
Baktus og Emma fer til tannlæknis svo eitthvað sé nefnt.