Bíladansinn

Þetta er "alltime favorite" hjá mér og örugglega hjá mörgum kynslóðum leikskólakrakka. Ég lærði Bíladansinn fyrir langa löngu af Dagnýu danskennara sem kom árlega til okkar í Heilsuleikskólanum Urðarhóli. Þegar ég fann tónlistina sem er notað við dansinn reyndi ég að muna hvernig Dagný hefði leiðbeint okkur gegnum dansinn með orðum og hreyfingum. Það má að sjálfsögðu breyta til að vild og gaman er að leyfa börnunum að ákveða hvaða bíla þau vilja að við förum í. Þau eru með alls konar hugmyndir!

Myndskeið

Myndskeiðið hér er tekið upp nýlega í leikskólanum Aðalþingi og hér má sjá brot af dansinum og hverning kennarinn talar yfir tónlistina og allir syngja með þegar kemur að "bí bí bomm, bomm, bomm, bomm".

Tónlistin

Lagið sem er notað undir bíladansinum heitir: Yo tengo un cohecito og er með Teresa Rabal. Lagið er á Spotify.

Leiðbeiningar

Hér að neðan er tillaga að því sem hægt er að segja og gera þegar maður stjórnar dansinum.

Spenna belti, kveikjum ljósin - og svo keyrum við.
og keyra...
og syngjum...
Bíbbí-bomm... o.s.frv.
(3 x slá í gólf, 3 x klappa til skiptis á meðan)

Spenna beltin, kveikjum ljósin.
Athuga með bremsurnar - eru bremsurnar í lagi?
(grípa í tærnar)
("Já", segja börnin. ”Gott!” segir kennarinn)
Og svo keyra af stað
Kíkjum upp í loftið,
það er svolítið mikil sól,
setjum á okkur sólgleraugu.
(gerir gleraugu úr fingrunum og lítur í kringum sig)
Og við brosum!
Nú er að koma rigning
(gerir rigningu með fingrunum)
Kveikjum á rúðuþurrkunum
(gerir rúðuþurrkuhreyf. með höndunum)
Bíbbí-bomm, o.s.frv.

Spenna beltin. Kveikja ljósin.
Og nú erum við í jeppa uppi á fjallinu
(hossast).
Og hvað gerist núna?
Hik-hik hik-hik
(kippist til).
Er hann orðinn bensínlaus?
("Nei", segja börnin).
Og svo keyrum við áfram.
Og nú kemur brjáluð snjókoma
(hristir hendurnar villt og galið).
Og rúðuþurrkurnar eru á fullu
(rúðuþurrkuhreyfingar).
Bíbbí-bomm, o.s.frv.

Spenna beltið, kveikja ljósin.
Og setja upp hjálminn.
Og tökum við kappakstursbílinn
(veltir sér til hliðanna
og síðan á bakið með fæturnar upp: O-O-O)
Bíbbí-bomm í lokin (byrjar hægt, lýkur venjulega)
Síðast breytt
Síða stofnuð