Hvern hefur ekki langað til að verða risaeðla? Auðvelt er að búa til risaeðlulag með því að breyta textanum við Skip to my Lou. Eitthvert barnanna ákveður hvaða risaeðlutegund við eigum að syngja um og þegar söngnum er lokið bendir það svo á þann sem á að velja næst. Svo er líka hægt að nota myndir þegar maður velur. Ég var svo heppin að finna gamalt gólfpúsl í Góða Hirðinum þar sem margar risaeðlur voru í heilu lagi.
Eftir að hafa unnið með risaeðluþema í mánuð þekktu börnin á deildinni
yfir 15 mismunandir risaeðlur - svo að söngurinn gat dregist á langinn -
en samt sungu þau alltaf af jafn miklum áhuga!
6 ára börn á Sjávarhóli eru hér að leika risaeðlur framan við myndir sem þau hafa
gert af mismunandi risaeðlutegundum (mars 2009):
Ég vildi að ég væri grameðla
D
Ég vildi að ég væri grameðla
A
Ég vildi að ég væri grameðla
D
Ég vildi að ég væri grameðla
A D
Grameðla með stórar tennur
Risa-stórar risa-eðlurRisa-stórar risa-eðlurRisa-stórar risa-eðlurUppáhalds dýrin okkar
Ég vildi að ég væri þórseðla
Ég vildi að ég væri þórseðla
Ég vildi að ég væri þórseðla
Þórseðla með langan háls
Risa-stórar risa-eðlur...
Ég vildi að ég væri kambeðla
Ég vildi að ég væri kambeðla
Ég vildi að ég væri kambeðla
Kambeðla með kamb á baki
Risa-stórar risa-eðlur...
Ég vildi að ég væri gaddeðla
Ég vildi að ég væri gaddeðla
Ég vildi að ég væri gaddeðla
Gaddeðla með gadda á hala
Risa-stórar risa-eðlur...
Ég vildi að ég væri flugeðla
Ég vildi að ég væri flugeðla
Ég vildi að ég væri flugeðla
Flugeðla með breiða vængi
Risa-stórar risa-eðlur...
o.s.frv.
Hugmynd: Imma og Birte
Hreyfing með laginu: Þegar við syngjum viðlagið yppum við öxlum í takt.
Myndskeið
Hér er lítið sætt myndskeið þar sem er hægt að heyra laglínuna: