Á morgun, 12. ágúst, verður sólmyrkvi á Íslandi og meira að segja almyrkvi á vesturhluta landsins. Það er afar sjaldgæft og næsti almyrkvi hér á landi verður ekki fyrr en árið 2196. Þó að veðurspáin sé nú reyndar ekkert alltof góð þá höldum við ennþá í vonina, ekki satt? Annars verðum við bara öll að syngja "Sól, sól skín á mig. Ský, ský burt með þig!" til að fá betra skyggni. En ég gerði lítið lag til að útskýra aðeins fyrir börnunum hvað er á ferðinni þótt það hafi líklega ekki farið fram hjá neinum hér á landi. Textinn er sunginn við sömu laglínu og "Út um mó".
Sólmyrkvalagið
Tungl og sól, tungl og sól!
Fylgjumst með þeim uppi’ á hól.
Þegar tunglið fyrir sólina fer,
sólmyrkvi þá verður hér!
Mundu þá, til að sjá,
sólmyrkva-gleraugu að setja á.
Þegar tunglið fyrir sólina fer,
verður þú að gæta að þér!
Þá verður fljótt um daginn nótt.
Í myrkrinu er allt svo hljótt.
Þegar tunglið fyrir sólina fer,
vil ég vera hér með þér!
Lag:"Út um mó"
Texti: Birte og Baldur, ágúst 2026
Myndskeið
Lagið varð til í gær með aðeins öðruvísi texta, en þegar ég fór að nota það á Aðalþingi í dag lagaði ég það aðeins til og ákvað að gera lítið myndskeið með því.
Ég ætla að lauma hér inn stuttri afmæliskveðju til sonar míns hans Matthiasar sem á stórafmæli á morgun, einmitt þegar almyrkvinn skellur á. Matthías er eðlisfræðingur og mun reyna að endurtaka Eddington-tilraunina sem fyrst var framkvæmd árið 1919 til að sýna fram á gildi afstæðiskenningar Einsteins.
Það er annars gaman að segja frá því að Matthias sá fyrsta sólmyrkvann sinn daginn fyrir þriggja ára afmælið, þegar hann var á leikskóla í Danmörku. "Månen gik ind i solen", útskyrði hann fyrir okkur foreldrunum þegar hann kom heim.