Stoppdans með trommu og teningi
Þessi stoppdans varð til við tilviljun vegna þess að við fundum stóran tening úr svampi inni í íþróttasal. Leikurinn er mjög skemmtilegur vegna þess að börnin elska að umbreytast. Til eru mörg tilbrigði við leikinn, t.d. að velja annan flokk en dýr.
-
Börnin ákveða hvaða hliðar teningsins svara til hvaða dýra. Hér erum við að nota myndir til að hjálpa okkur að muna.
-
Þá byrjar dansinn. Kennarinn slær trommuritma um hríð meðan börnin dansa, en slær svo skyndilega þrisvar með báðum höndum á trommuna meðan hann hrópar: "1-2-3 - Frjósa!" Börnin frjósa þá í þeirri stellingu sem þau voru í.
-
Börnin skiptast á að kasta teningnum. Þau breytast síðan í það dýr sem búið var að ákveða fyrir þá hlið. Eftir smá stund byrjar trommuleikurinn aftur og börnin dansa að nýju.