Við leikum að við séum tröll. Á daginn sofum við inni í hellinum okkar, en
þegar það verður miðnætti vöknum við og förum á fætur. Í þessari upptöku
notum við þetta í sambandi við lokin á samverustund, áður en við förum
inn í matsal. Það er auðvitað líka hægt að gera lengra ferli úr þessum
leik, þar sem maður endurtekur hann, og í hvert skipti vakna tröllin
t.d. í mismunandi skapi, sem börnin eiga að tjá.
Það eru þúsund tröll
Það eru þúsund tröll
Það eru þúsund tröll
sem koma fram um nætur
er klukkan verður tólf
Það eru þúsund tröll
Það eru þúsund tröll
sem koma fram um nætur
er klukkan verður tólf
1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12!
Það eru þúsund tröll
Það eru þúsund tröll
er sólin kemur upp
þá flýta þau sér heim!