Það er gaman hversu vinsælt þetta lag hefur orðið meðal barnanna, því
að var svosem bara smáhugmynd sem kviknaði þegar ég fékk bókina "Does an
Elephant Take a Bath?". Þá bjó ég til lítið lag sem passaði við hana.
Börnunum finnst bókin fyndin af því að hún sýnir mismundi dýr í baðkeri
en hún fræðir okkur líka um það hvernig þessu dýr fara í alvörunni að
því að halda sér hreinum.
Af því lagið er svo einfalt þá tók ég eftir því að börnin voru farin að
nota það sjálf þegar þau voru að skoða bókina án kennara. Á myndskeiðinu
hér fyrir neðan má þar fyrir utan sjá í lokin hvernig strákarnir eru í
raunnini að nota allt aðra dýrabók en tengja samt lagið við hana líka
:o)
Þegar fíllinn fer í bað,
gerir hann eins og við?
Fer hann inn á baðherbergið,
skríður upp í baðkerið?
Nei! Það gerir han ei!
Þegar nashyrningur fer í bað,
gerir hann eins og við?
Fer hann inn á baðherbergið,
skríður upp í baðkerið?
Nei! Það gerir han ei!
o.s.frv.